föstudagur, júní 28, 2013

Kanada og Norður-Ameríka 2013

Ég ákvað að endurvekja bloggið mitt frá menntaskólaárunum til þess að blogga um ferðalag mitt í Kanada og Norður-Ameríku þetta sumarið. Bloggið er ætlað ættingjum mínum og vinum og ekki síst sjálfri mér til þess að halda til haga upplifunum mínum og ævintýrum þarna úti. Ég fer með prógrammi sem heitir Snorri West. Fyrir áhugasama er hægt að lesa betur um það hér. Ég fer með þremur öðrum stelpum sem heita Hulda, Svandís og Þorbjörg svo þetta verður sannkölluð stelpuferð. Í dag eru ellefu dagar í brottför svo það fer heldur betur að styttast í ferðina. Ég hef ekki haft mikinn tíma til að hlakka til, þar sem það hefur verið svo mikið að gera, en ég áttaði mig á því í dag að ég verð farin út áður en ég veit af.

Í dag var ég á fundi með Ástu Sól, Gail og stelpunum og fékk hver og ein okkar voða flotta möppu með fullt af upplýsingum. Það hefur verið rosa vel að öllu staðið varðandi prógrammið alveg frá upphafi. Í júnímánuði fór ég á ýmsa viðburði tengdu því og hitti ég meðal annars ungmenni frá Kanada og Bandaríkjunum sem eru hér á landi í sex vikur í svipuðu prógrammi. Þau eiga ættingja hér á landi og dvelja hjá þeim ásamt því að ferðast um landið. Veðrið hér hefur því miður ekki verið sem best í sumar og vona ég að það fari að lagast þeirra vegna og allra annarra. Ég hlakka voða til að komast í sólina í Kanada og USA.

Við fljúgum fyrst til Toronto og munum svo ferðast víða um Kanada ásamt því að eyða einum degi í North-Dakota. Þar tökum við þátt í sumarbúðum og fræðum börnin eitthvað um íslensk jól. Í Kanada tökum við einnig þátt í einhverjum sjálboðastörfum. Ég mun blogga meira um þetta allt þegar að því kemur.

Ég ætla reyna að blogga reglulega svo hægt sé að fylgjast með en lofa þó engu. Núna ætla ég að fara lesa upplýsingarnar sem ég fékk í dag.

föstudagur, apríl 14, 2006

HM...

Já, kæru gestir síðu minnar. Hún Drífa bað mig um að hripa eitthvað niður, enda langt síðan gott lesefni barst...ehe!!!

Ég er í páskafríi, já eins og svo margir aðrir og hefur það tjaa.....verið svosem allt í lagi. Fínt að fá aðeins frí úr skólanum og koma hress aftur. Flestir komnir með einhvern skólaleiða.

Svo verð ég bara að koma því að bara fyrir hana Drífu, sem er held ég pínulítið, já bara pínulítið öfundsjúk að ég er að fara til Berlínar í sumar. Ég hlakka alveg óendanlega mikið til þar sem ég get spreytt mig á allri minni þýskukunnáttu, sem er sko mikil, ég held bara nánast stundum að ég sé Þjóðverji. Og svo er náttúrulega HM í sumar í Þýskalandi......vúhúúúú.

Svo að öðru ég var að eignast litla frænku í dag...það streyma bara inn endalaust af skemmtilegum fréttum. Hún fæddist samt í Danmörku og er hálf dönsk. Skrítið að hugsa til þess að hún eigi eftir að verða helmingi betri en ég í dönsku. En hlakka mikið til að sjá hana.
___________________________

En já, Drífa nóg? Nei hélt ekki...

Smá af henni Drífu. Hún er búin að vinna eins og ég veit ekki hvað. Alltaf vinnandi, annaðhvort Golfskálinn, passa, Golfkálinn, passa, Golfskálinn, passa. Hún er samt hress stelpan.
Annars biður hún að heilsa almúganum...ehe.

Jæja, núna nenni ég þessu ekki lengur.... ég ætla að enda þetta með mynd af nýja og flotta bílnum mínum...




Gerður

laugardagur, mars 25, 2006

Sæl og blessuð...

Jæja, kominn tími til eftir langa fjarveru. Ég nenni varla að halda þessari síðu uppi, ekki það að ég sé eitthvað löt, ég einfaldlega nenni því bara ekki. En hvað um það, ætla að ''steypa'' eitthvað fyrir þig lesandi góður.

Ég er dottinn inn í alveg frábæra þætti, Prison Break. Þorvaldur var svo góður að gefa mér fyrstu tólf þættina og hef ég algjörlega fests í þeim. Þetta eru þrusugóðir þættir. ''Farð að horfa maður.'' ;)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Fór í Austurbæjarbíó áðan, þar sem úrslitin úr kosningunum í skólanum voru tilkynnt. Og alveg er ég búin að komast að því að það er í góðu lagi að mæta hálftíma til klukkutíma á seint á einhverja svona atburði sem MR heldur. Það var þvílík seinkun á dagskránni eins og vanalega. En það var í góðu lagi, þó svo að ég sé ekki sú þolinmæðasta.
Doddi var kosinn Inspector Scholae, ég hafði sterkan grun um að hann myndi vinna og Svanhvít var kosin forseti Framtíðarinnar og sömu sögu má segja þar um mína sterku dómgreind.
Mér fannst samt frekar leiðinlegt að Þorvaldur skuli ekki vera kosin skólaráðsfulltrúi. Hann er búin að standa sig svo vel í þessu embætti í ár. Skamm, skamm krakkar. Nei, segi svona, svona er þetta bara. Ömurlegt.

Ég og Rakel fórum síðan á einhvern pizzastað eftir úrslitin, en hittum síðan krakkana á öðrum pizzastað stuttu síðar, misstum nefninlega af þeim í millitíðinni.
Það var frekar fyndið að á síðari pizzastaðnum :) hittum ég og Rakel hana Hjördísi Halldóru sem hafði verið leiðbeinandinn okkar í unglingavinnunni í 9. bekk. Hún mundi eftir okkur enda er ekki hægt að gleyma okkur Rakel.


Já... tja býst ekki við að það sé gaman fyrir ykkur að lesa þetta en mér gæti ekki verið meira sama......

_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Pabbi átti afmæli í gær, og ætlaði ég að vera svo góð dóttir og gefa honum einhverja gjöf. Skundaði í Kringluna eftir skóla, en viti menn ég hefði betur getað sleppt því að fara því að ég eyddi tæplega 17.000 kalli í föt fyrir sjálfa mig. Búhúú ég verð að fara að fá mér vinnu. Keypti samt kaffi og eitthvað í kaffibúðinni handa ''gamla manninum.''


Farin að horfa á Prison Break.

OG þá hefur yðar tign ekkert fleira að deila með almúganum í bili.

mánudagur, janúar 16, 2006

HAHAHA.....



1970 Davíð Oddson tekur við af Geir H.Haarde inspector í Menntaskólanum í Reykjavík.

...rakst á þessa skemmtilegu mynd á netinu áðan.

laugardagur, desember 31, 2005

2006


Gleðilegt nýtt ár 2006 !
-Takk fyrir það gamla.

Áramótakveðjur Gerður

föstudagur, nóvember 04, 2005

Borgóballið

Er búin að fá nýja síma :D :D :D... varð að deila þessu með ykkur.

En já ég skellti mér á Hollywood ball hjá Borgarholtsskóla í gærkvöldi. Drífa var svo yndisleg að bjóða mér. Takk Drífa mín. Byrjaði kvöldið heima hjá henni, svo ætlaði bróðir hennar að sækja okkur um tíu og fara á ballið. En naunau kom ekki bara risastór, svört limma :D. Fórum eitthvað að rúnta um bæinn með Friðjóni og fullum vinum hans. Þeir voru fyndnir. Mikið um pissustopp hjá þeim. En svo var komið á ballið sem var haldið í gamla Iðnaðarmannahúsinu, Versölum. Veðurguðirnir héldu uppi stuðinu og stóðu sig ágætlega. Ég og Drífa skemmtum okkur vel. Tókum svo leigara upp í Grafarvoginn um hálf eitt leytið. - Takk fyrir kvöldið.

Svo mætti maður myglaður og þreyttur í skólann í morgun, en ég sofnaði um leið og ég kom heim. Safna upp svefntapi eftir vikuna.

En nóg í bili
- Gerður

fimmtudagur, október 27, 2005

Mól

Mól er fyrirbæri sem mér líkar hreint ekki vel við. Satt best að segja myndi ég segja efnafræðin öll. Hún er ekki mín sterkasta hlið. Endalaus efni, formúlur og bla bla. Getur samt verið ágæt á köflum. Var semsagt í efnafræðiprófi í morgun og gekk ekki nógu vel. Sem er fúlt, því ég fékk alveg ágætiseinkunn á fyrra prófinu sem ég tók.

Ætla að fara að gera eitthvað að viti svo ég kveð.
- Gerður